Ísak Snær Þorvaldsson byrjaði á bekknum þegar Rosenborg vann Fredrikstad á útivelli í norsku deildinni í kvöld.
Rosenborg var með 1-0 forystu í hálfleik. Ísak kom inn á þegar tæpur hálftími var til loka venjulegs leiktíma.
Rosenborg var með 1-0 forystu í hálfleik. Ísak kom inn á þegar tæpur hálftími var til loka venjulegs leiktíma.
Liðið bætti síðan við öðru marki í uppbótatíma og 2-0 sigur staðreynd. Rosenborg er í 2. sæti með 21 stig eftir tíu leiki.
Viking er á toppnum með 26 stig eftir magnaða endurkomu gegn Bodö/Glimt í kvöld. Hilmir Rafn Mikaelsson sat allan tímann á bekknum hjá Viking.
Liðið var 2-1 undir í hálfleik en Bodö/Glimt missti mann af velli eftir rúmlega klukkutíma leik og Viking skoraði þrjú mörk eftir það og vann því að lokum 4-2. Eins og fyrr segir er liðið með 26 stig á toppnum en liðið hefur spilað einum leik meira en Rosenborg.
Athugasemdir