Al-Nassr vill fá Luis Díaz - Bayern ekki búið að gefast upp á Wirtz - Chelsea gæti keypt Sancho
   fim 29. maí 2025 20:53
Ívan Guðjón Baldursson
Chelsea í viðræðum við Sancho
Mynd: Chelsea
Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea er í samningsviðræðum við Jadon Sancho þessa dagana. Chelsea ætlar að kaupa leikmanninn ef hann lækkar launakröfurnar sínar.

Sancho gerði fína hluti á láni hjá Chelsea á nýliðnu keppnistímabili og skoraði meðal annars gegn Real Betis í úrslitaleik Sambandsdeildarinnar.

Sancho er á láni frá Manchester United og fylgir 25 milljón punda kaupskylda með lánssamningnum. Chelsea getur þó hætt við að kaupa leikmanninn og borgað 5 milljónir punda í einskonar sektargreiðslu til Man Utd.

Þessi kantmaður gerði garðinn frægan hjá Borussia Dortmund eftir að þýska félagið hafði keypt hann úr röðum Manchester City.

Man Utd borgaði rúmlega 70 milljónir punda til að kaupa hann frá Dortmund sumarið 2021. Sancho fann aldrei taktinn í Manchester og var lánaður aftur til Dortmund áður en hann fór til Chelsea á láni.

Enzo Maresca þjálfari Chelsea er hrifinn af Sancho en háar launakröfur leikmannsins gætu reynst hindrun.

Sancho, 25 ára, er með eitt ár eftir af samningi hjá Man Utd - með möguleika á auka ári.
Athugasemdir