
Sverrir Páll skoraði sigurmarkið gegn FH í dag. Hann vonast til að fá meiri spiltíma svo hann geti skorað fleiri mörk til að hjálpa ÍBV.
Sverrir Páll Hjaltested kom inn af bekknum í síðari hálfleik og skoraði svo sigurmarkið í endurkomusigri ÍBV gegn FH í Bestu deildinni í dag.
Lestu um leikinn: ÍBV 2 - 1 FH
Sverri var skipt inn í stöðunni 1-1 og skoraði hann sigurmarkið eftir langt innkast í uppbótartíma venjulegs leiktíma. Þetta er fyrsta mark Sverris á deildartímabilinu eftir að hafa oft komið inn af bekknum undir lok leikja, en hann hafði þó fengið að spila 90 mínútur og 45 mínútur í síðustu tveimur umferðum fyrir leikinn í dag.
„Ég er ekki búinn að fá voðalega margar mínútur þannig að svona gerir mikið fyrir mig í dag. Það er auðvitað mjög slæmt fyrir okkur að missa Ómar og Óliver en við erum strákar hérna sem erum búnir að spila núna í nokkur ár. Ég tel það ekki endilega vera vesen fyrir okkur að laga þetta og skora mörkin," sagði Sverrir Páll að leikslokum.
„Þeir fengu mörg góð færi sem þeir nýttu ekki, en við nýttum okkar færi og unnum leikinn."
Sverrir verður 25 ára í sumar og skoraði hann 6 mörk í 20 leikjum með ÍBV í Lengjudeildinni í fyrra, eftir að hafa gert 6 mörk í 23 leikjum í Bestu deildinni 2023.
Athugasemdir