Eberechi Eze er lykilleikmaður í liði Crystal Palace og óljóst hvort félaginu takist að halda honum innan sinna raða þrátt fyrir að hafa sigrað úrslitaleik enska FA bikarsins á dögunum.
Eze skoraði eina mark leiksins í úrslitaleiknum gegn Manchester City sem reyndist fyrsti stóri titillinn í 163 ára sögu Crystal Palace.
„Mig hefur dreymt um að vinna titla síðan ég var lítill strákur og þetta er loksins að rætast. Þetta er eitthvað sem ég hef verið að hugsa um og óska mér alla mína ævi," sagði Eze meðal annars um FA titilinn.
„Ég er líklega ekki jafn hissa og allir aðrir en ég er mjög þakklátur Guði fyrir að hafa gefið mér þetta tækifæri. Það er risastórt að sigra þennan titil með félaginu. Ég á varla til orð yfir hvað ég er stoltur að hafa verið partur af liðinu sem kom með fyrsta titilinn til Suður-London."
Eze hóf ferilinn ekki hjá Crystal Palace sem barn, heldur kom hann við hjá Arsenal, Fulham og Millwall áður en hann fann loksins taktinn með QPR og var keyptur til Palace. Í dag er hann algjör lykilmaður liðsins og gríðarlega eftirsóttur af stórliðum í ensku deildinni og víðar.
Honum virðist líða mjög vel undir stjórn Oliver Glasner hjá Palace en gæti þó verið seldur í sumar.
Eze verður 27 ára gamall í sumar og er með tvö ár eftir af samningi sínum við Palace. Hann er falur fyrir 68 milljónir punda í sumar vegna riftunarákvæðis í samningnum.
„Ég er hungraður í að sigra meira. Ég mun gera allt í mínu valdi til að sigra ensku úrvalsdeildina."
Athugasemdir