Chelsea er fyrsta liðið í sögunni til að vinna alla þrjá stóru Evróputitlana, Meistaradeildina, Evrópudeildina og Sambandsdeildina, eftir sigur á Real Betis í úrslitum Sambandsdeildarinnar í kvöld.
Levi Colwill ræddi við TNT Sports strax eftir leikinn.
„Við vissum að þeir væru með gott lið. Stuðningsmennirnir voru að ýta þeim áfram í byrjun en það tekur enda. VIð biðum eftir okkar tækifærum og við gerðum það í seinni hálfleik," sagði Colwill.
Chelsea tryggði sér sæti í Meistaradeildinni með sigri á Nottingham Forest í lokaumferð úrvalsdeildarinnar.
„Þetta hefur verið frábært. Við gerðum allt sem við ætluðum okkur, ég vann fyrstu Evrópukeppnina mína með Chelsea, vonandi eru fleiri framundan. Komumst svo í Meistaradeildina á næstu leiktíð. Ég held að maður geti ekki endað þetta betur," sagði Colwill.
Chelsea become the first football club to complete the European Treble:
— Football on TNT Sports (@footballontnt) May 28, 2025
???? Europa League
???? Champions League
???? Conference League
Historic. pic.twitter.com/DYE8XTq1rY
Athugasemdir