Senegalski vængmaðurinn Amad Diallo segist ekki sjá eftir því að hafa gefið stuðningsmönnum puttann eftir 1-0 tap Manchester United gegn úrvalsliði Suður-Asíu í gær.
Man Utd tapaði leiknum 1-0 og eftir leikinn kölluðu stuðningsmenn að honum og öðrum leikmönnum.
Hann sakar stuðningsmennina um að tala niðrandi um móður hans og svaraði hann því með því að gefa þeim puttann.
„Ég ber virðingu fyrir fólki, en ekki þeim sem tala niðrandi um móður mína. Ég hefði ekki átt að bregðast við á þennan hátt, en ég sé ekki eftir því sem ég gerði. Við skemmtum okkur frábærlega með góðu fólki í Malasíu,“ sagði Diallo á X.
Man Utd spilar seinni vináttuleik sinn gegn úrvalsliði Hong Kong og Kína á morgun.
I have respect for people but not for the one who insults my mom…
— Amad (@Amaddiallo_19) May 29, 2025
I shouldn't have reacted like that but I don't regret what I did.????????
We had a great time in Malaysia with good people?????? pic.twitter.com/9d1WeCTMTd
Athugasemdir