Real Madrid skráir sig í baráttuna um Wirtz - Brentford í leit að markverði - Sane til Arsenal?
   fim 29. maí 2025 15:30
Brynjar Ingi Erluson
Framtíð Antony óljós - „Aðeins Guð veit það“
Mynd: EPA
Framtíð brasilíska vængmannsins Antony mun ráðast í sumar en hann segist ekki vita hvort hann verði áfram hjá Real Betis eða Manchester United.

Antony eyddi síðari hluta tímabilsins á láni hjá Betis og kom þar að 20 mörkum í 27 leikjum í La Liga og Sambandsdeildinni.

Hann leiddi liðið áfram í úrslit Sambandsdeildarinnar þar sem það tapaði fyrir Chelsea, 4-1, í gær.

Brasilíumaðurinn snýr aftur til United í sumar, en hann hefur ekki hugmynd um hvað mun gerast í framtíðinni.

„Ég veit ekki hvað framtíðin ber í skauti sér, aðeins Guð veit það,“ sagði Antony við CBS.

Næstu ummæli Antony voru í mótsögn við það sem hann sagði fyrst.

„Vinna mín er að spila og ég hef verið að gera vel. Ást mín á Real Betis er mikil og öllum sem tengjast félaginu, en ég er samningsbundinn Manchester United og veit ekkert hvað mun gerast. Aðeins þeir vita hvað mun gerast.“

„Núna mun ég fara í landsliðið og síðan í frí, en eftir það munum við sjá hvað gerist. Það vita allir að ég er ánægður hér. Ég fór að sofa og vaknaði ánægður,“
sagði Antony í lokin.
Athugasemdir
banner
banner