Real Madrid skráir sig í baráttuna um Wirtz - Brentford í leit að markverði - Sane til Arsenal?
   fim 29. maí 2025 13:50
Brynjar Ingi Erluson
Styttist í samkomulag - „Fær bráðum grænt ljós til að hoppa upp í flugvél“
Florian Wirtz fer til Liverpool
Florian Wirtz fer til Liverpool
Mynd: EPA
Liverpool er að nálgast samkomulag við Bayer Leverkusen um þýska landsliðsmanninn Florian Wirtz.

Belgíski blaðamaðurinn Sacha Tavolieri sem var fyrstur til að greina frá fréttum um Wirtz og Liverpool segir viðræðunum miða áfram.

Liverpool og Leverkusen eru að ræða það hvernig sé best að dreifa kaupverðinu, en Leverkusen er ekki að gera enska félaginu auðvelt fyrir. Kaupverðið er talið nema um 126 milljónum punda.

Félögin eru hins vegar á sömu blaðsíðu og er Wirtz að búast við því að fá græna ljósið á næstu dögum til að hoppa upp í vél og skrifa undir fimm ára samning við Liverpool.

Tavolieri segir aðeins tímaspursmál hvenær skiptin fara í gegn en Wirtz er nú kominn til móts við þýska landsliðið fyrir undanúrslitaleik liðsins gegn Portúgal í Þjóðadeildinni.

Þýska fótboltasambandið mun gefa honum leyfi til að ganga frá sínum málum á næstu dögum.
Athugasemdir
banner