Al-Nassr vill fá Luis Díaz - Bayern ekki búið að gefast upp á Wirtz - Chelsea gæti keypt Sancho
Alex Þór: „Steven Caulker? - Þetta hefur skautað framhjá manni"
Stjarnan aðeins 26% með boltann - „Að einhverju leyti óborguð yfirvinna"
„Sorglegt að fá á sig fjögur mörk gegn Stjörnuliði sem spilaði ekki betur en raun bar vitni"
Túfa: Að mínu mati besti leikmaður deildarinnar
Sverrir Páll: Við getum stigið upp og skorað mörkin
Láki fann fyrir létti: Vicente breytti leiknum
Magnús Már: Fullt af dómum sem sérfræðingar mega skoða
Bjarni Aðalsteins: Ég hef aldrei spilað svona leik áður
Rúnar Kristins: 12 mínútur í uppbótartíma ég hef aldrei upplifað það áður
Heimir Guðjóns ósáttur með vinnuframlagið
Alli Jói: Úrslitin eftir 90 mínútur ljót
Haddi: Samdi við Rúnar Kristins
Sigurvin Ólafs: Sóknin er sjóðandi heit
Ómar Björn heppinn að fá ekki rautt: Þarf maður ekki lukku í þessu?
Viktor Jóns: Æðislegt að upplifa þetta og finna þetta aftur
Dóri Árna: Sjá það allir sem eru á vellinum nema fjórir menn
Sölvi: Vorum til í slagsmál og með yfirhöndina í návígjum
Davíð Smári: Komust upp með að væla og liggja í grasinu
„Bara frábært" að vera komin aftur í landsliðið
Tilbúin í nýja áskorun - „Verðið bara að bíða eins spennt og ég"
   fim 29. maí 2025 19:50
Brynjar Óli Ágústsson
Magnús Már: Fullt af dómum sem sérfræðingar mega skoða
Magnús Már Einarsson, þjálfari Afturelding
Magnús Már Einarsson, þjálfari Afturelding
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Súr, mér fannst frammistaðan að mörgu leiti mjög góð, og fyrsti hálftíminn var mögulega besti kaflinn okkar í sumar. Áttum að mínu mati að komast yfir áður en þeir komast yfir þannig þetta er mjög svekkjandi niðurstaða,'' segir Magnús Már Einarsson, þjálfari Afturelding, eftir 0-2 tap gegn Val í 9. umferð Bestu deildarinnar.


Lestu um leikinn: Afturelding 0 -  2 Valur

„Ég er ánægður með strákana og ánægður með karakterinn og trúna. Við héldum áfram allan tímann, við vorum að reyna og ég er ánægður með það. Við þurfum bara að laga nokkra hluti og fínpússa. Það er þó ekki mikið og mér fannst frammistaðan að mörgu leyti mjög góð og við hefðum á öðrum degi fengið meira út úr þessu en í dag,''

Afturelding lenti undir eftir umræðu miklan vítadóm. Hvernig fannst þér þessi dómar hjá Helga?

„Hárréttur, en það er fullt af öðrum dómum sem eru inn í vítateig hinu megin sem sérfræðingar mega skoða. Ég er örugglega of litaður til að taka ákvarðanirnar þar en við vildum fá víti á einhverjum tímapunkti,''

Arnór Gauti hefur ekki spilað fyrir Afturelding síðan 4. umferð. Hvernig er staðan á Arnóri Gauta?

„Hann er allur að koma til. Hann er búinn að vera tæpur í nokkrar vikur en byrjaður að æfa og mjög stutt í að hann verður tilbúinn aftur.''

Afturelding var að tapa sinn fyrsta heimaleik á tímabilinu.

„Við erum búnir að standa okkur frábærlega hingað til og frábær stuðningur í stúkunni, frábær stemning eins og vanalega og bara leiðinlegt að gefa ekki fólkinu betri úrslit,''

Hægt er að horfa á viðtalið í heild sinni fyrir ofan.


Athugasemdir
banner