Real Madrid skráir sig í baráttuna um Wirtz - Brentford í leit að markverði - Sane til Arsenal?
   fim 29. maí 2025 12:05
Elvar Geir Magnússon
Tryggvi Guðmunds valinn sá besti í efstu deild
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tryggvi Guðmundsson var efstur í vali á bestu leikmönnum í efstu deild karla í fótbolta frá 1992 en Vísir stóð fyrir valinu og fékk stóran hóp sparkspekinga í dómnefnd.

„Förum aðeins yfir afrekaskrá Tryggva Guðmundssonar. Fimm sinnum Íslandsmeistari, tvisvar sinnum bikarmeistari, enn handhafi metsins yfir flest mörk í sögu efstu deildar, var handhafi markametsins í 27 ár, kom með beinum hætti að 204 mörkum í efstu deild (sá eini sem hefur farið yfir tvö hundruð mörkin), einu sinni leikmaður ársins, einu sinni besti ungi leikmaðurinn, tvisvar sinnum markakóngur, einu sinni stoðsendingakóngur og annar tveggja (ásamt Guðmundi Steinssyni) sem hafa náð sex tíu marka tímabilum í efstu deild. Allt þetta þrátt fyrir að hafa spilað sjö ár, á besta aldri, erlendis." segir í umfjöllun Vísis.

Tryggvi lék sína fyrstu leiki í efstu deild 1992 með uppeldisfélaginu ÍBV. Hann varð Íslandsmeistari með Eyjamönnum 1997 og átti síðar eftir að lyfta Íslandsmeistarabikarnum fjórum sinnum í treyju FH. Hann vann bikarmeistaratitilinn tvívegis, með KR 1994 og FH 2007.

Hér má sjá umfjöllunina um Tryggva en hér að neðan má sjá hverjir enduðu í topp tíu í kosningunni.

1. Tryggvi Guðmundsson
2. Atli Guðnason
3. Óskar Örn Hauksson
4. Sigursteinn Gíslason
5. Guðmundur Benediktsson
6. Arnar Gunnlaugsson
7. Patrick Pedersen
8. Atli Viðar Björnsson
9. Davíð Þór Viðarsson
10. Ólafur Þórðarson
Athugasemdir