Real Madrid skráir sig í baráttuna um Wirtz - Brentford í leit að markverði - Sane til Arsenal?
   mið 28. maí 2025 20:34
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sjáðu mörkin: Chelsea sneri blaðinu við á fimm mínútna kafla
Cole Palmer lagði upp bæði mörkin
Cole Palmer lagði upp bæði mörkin
Mynd: EPA
Chelsea er búið að snúa blaðinu við og er komið með forystuna gegn Real Betis í úrslitum Sambandsdeildarinnar. Chelsea var í stökustu vandræðum í fyrri hálfleik og Real Betis var með verðskuldaða forystu þegar flautað var til hálfleiks.

Það var Abde Elzzalzouli sem skoraði mark Betis snemma í fyrri hálfleik eftir sendingu frá Isco.

Það er allt annað að sjá til Chelsea liðsins í seinni hálfleik. Liðið hefur náð að skapa ser hættuleg færi og Reece James hefur komið vel inn í þetta en hann kom inn á fyrir Malo Gusto í hálfleik.

Enzo Fernandez skoraði eftir rúmlega klukkutíma leik með skalla eftir fyrirgjöf frá Cole Palmer. Fimm mínútum síðar skoraði Nicolas Jackson með skalla aftur eftir sendingu frá Palmer.

Sjáðu markið hjá Fernandez
Sjáðu markið hjá Jackson


Athugasemdir
banner
banner