Real Madrid skráir sig í baráttuna um Wirtz - Brentford í leit að markverði - Sane til Arsenal?
   mið 28. maí 2025 23:29
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Einkunnir Betis og Chelsea: Palmer maður leiksins - Antony fær fimm
Mynd: EPA
Cole Palmer var maður leiksins að mati Sky Sports þegar Chelsea vann Real Betis í úrslitum Sambandsdeildarinnar í kvöld. Hann lagði upp tvö fyrstu mörk liðsins.

Reece James, Jadon Sancho og Kieran Dewsbury-Hall komu allir sterkir inn af bekknum en þeir fengu allir sjö. Malo Gusto var hins vegar í vandræðum og fær aðeins fjóra en hann var tekinn af velli í hálfleik fyrir James.

Isco var bestur hjá Betis og fær átta. Markaskorarinn Abde Elzzalzouli fær sjö ásamt Ricardo Rodriguez. Antony hefur verið frábær í búningi Real Betis en hann fann sig ekki í kvöld og fékk fimm í einkunn.

Real Betis: Adrian (6), Sabaly (5), Bartra (6), Natan (6), R Rodriguez (7), Fornals (5), Cardoso (6), Antony (5), Isco (8), Ezzalzouli (7), Bakambu (6).
Varamenn: Perraud (4), J Rodriguez (6), Ruibal (5), Altimara, Lo Celso (spilaði ekki nóg).

Chelsea: Jorgensen (6), Gusto (4), Badiashile (5), Chalobah (6), Cucurella (6), Fernandez (7), Caicedo (7), Neto (5), Palmer (9), Madueke (6), Jackson (7).
Varamenn: James (7), Sancho (7), Colwill (6), Dewsbury-Hall (7), Guiu (spilaði ekki nóg).
Athugasemdir
banner