

Íslenska kvennalandsliðið skipað leikmönnum 23 ára og yngri gerði 2-2 jafntefli við Skotland í vináttulandsleik á Falkirk-leikvanginum í dag.
Vigdís Lilja Kristjánsdóttir, leikmaður Anderlecht í Belgíu, skoraði fyrra mark Íslands á 25. mínútu.
Sóknin byrjaði frá aftasta leikmanni. Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving, markvörður Íslands, kom löngum bolta fram völlinn. Varnarmaður Skota missti boltann aftur fyrir sig á Dilja Ýr Zomers sem kom með laglega stungusendingu á bakvið vörn Skota og á Vigdísi sem lagði hann framhjá markverðinum og í netið.
Níu mínútum síðar jöfnuðu Skotar er Mist Funadóttir braut af sér í teignum. Maria McAneny tók spyrnuna og setti hann neðst í hægra hornið. Auður valdi rétt horn en vítaspyrnan var gríðarlega örugg.
Staðan 1-1 í hálfleik en það voru Skotar sem náðu að snúa taflinu við á 66. mínútu eftir góða sókn sem hin 19 ára gamla Jodi McLeary kláraði.
Þegar lítið var eftir af leiknum fengu Íslendingar hornspyrnu sem Bergdís Sveinsdóttir kom á fjærstöng. Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir var þar í baráttunni við Lisu Forrest sem stýrði boltanum í eigið net.
Lokatölur 2-2 í Falkirk en liðin mætast öðru sinni á mánudaginn á sama velli.
Byrjunarlið Íslands: Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving (M), Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir, Birna Kristín Björnsdóttir, Jakobína Hjörvarsdóttir, María Catharina Ólafsdóttir Gros, Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir, Elín Helena Karlsdóttir (F), Diljá Ýr Zomers, Mist Funadóttir, Bergdís Sveinsdóttir, Vigdís Lilja Kristjánsdóttir.
Athugasemdir