Arnór Sigurðsson og Daníel Tristan Guðjohnsen voru í liði Malmö sem tapaði gegn Häcken í úrslitum sænska bikarsins á Elveda-leikvanginum í Malmö í dag.
Tafir voru í byrjun leiks þar sem stuðningsmenn Malmö voru að fikta í öryggisnetinu við völlinn og varð átta mínútna töf og síðan aftur 25 mínútna töf eftir að þeir rifu það þó vallarþulurinn hafi vinsamlegast beðið þá um að gera það ekki.
Pontus Jansson, reyndasti maður Malmö, fór til stuðningsmanna til að ræða við þá og stuttu eftir það gat leikurinn hafist að nýju.
Daníel hafði aðeins spilað einn bikarleik fram að leiknum í dag og skoraði þrjú mörk í þeim leik, en kom inn á þegar tíu mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma í leiknum í dag.
Staðan var markalaus eftir 90 mínútu og í byrjun síðari hluta framlengingarinnar kom Arnór inn á völlinn.
Ekkert var skorað í framlengingunni og þurfti vítakeppni til að krýna bikarmeistara.
Sead Haksabanovic og Busanello klikkuðu á punktinum fyrir Malmö, en Arnór og Daníel fengu ekki tækifæri í vítakeppninni.
Häcken bikarmeistari í fjórða sinn í sögunni og nú búið að tryggja sér sæti í forkeppni Evrópudeildarinnar.
BK Häcken vinner Svenska Cupen efter straffläggning ????#bkhäcken pic.twitter.com/PF4R6JbZ5a
— BK Häcken (@bkhackenofcl) May 29, 2025
Athugasemdir