Mark Flekken markvörður Brentford er nálægt því að ganga til liðs við þýska félagið Leverkusen.
Flekken hefur verið aðalmarkvörður Brentford undanfarin tvö tímabil en liðið hafnaði í 10. sæti á nýliðnu tímabili og hann hélt sjö sinnum hreinu.
Flekken hefur verið aðalmarkvörður Brentford undanfarin tvö tímabil en liðið hafnaði í 10. sæti á nýliðnu tímabili og hann hélt sjö sinnum hreinu.
Hann hefur náð samkomulagi við þýska félagið en viðræður milli Leverkusen og Brentford eru á lokastigi.
Það verður áhugavert að sjá hvað þetta mun þýða fyrir íslenska landsliðsmarkvörðinn Hákon Rafn Valdimarsson sem var varamarkvörður liðsins í ár. Hann kom við sögu í fimm leikjum, þar af tveimur í úrvalsdeildinni.
Hins vegar hefur Brentford haft samband við Liverpool varðandi Caoimhin Kelleher.
Athugasemdir