Al-Nassr vill fá Luis Díaz - Bayern ekki búið að gefast upp á Wirtz - Chelsea gæti keypt Sancho
   fim 29. maí 2025 21:25
Ívan Guðjón Baldursson
Besta deildin: KR-ingar náðu sér aldrei eftir svakalegar upphafsmínútur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan 4 - 2 KR
1-0 Emil Atlason ('2)
2-0 Alex Þór Hauksson ('9)
3-0 Benedikt V. Warén ('11)
3-1 Aron Sigurðarson ('45+5)
4-1 Örvar Eggertsson ('56)
4-2 Hjalti Sigurðsson ('94)

Lestu um leikinn: Stjarnan 4 -  2 KR

Stjarnan tók á móti KR í lokaleik dagsins í Bestu deild karla og úr varð áhugaverður slagur þar sem Garðbæingar komust í þriggja marka forystu á fyrstu ellefu mínútunum.

Alex Þór Hauksson var allt í öllu þar sem hann lagði fyrsta markið upp með snyrtilegri stungusendingu fyrir Emil Atlason áður en hann skoraði glæsilegt mark til að tvöfalda forystuna. Alex skoraði með viðstöðulausu skoti og tveimur mínútum síðar lagði hann þriðja mark leiksins upp með góðri sendingu fyrir markið. Benedikt Warén þurfti lítið að gera til að klára af stuttu færi.

Leikurinn róaðist niður eftir þriðja markið og unnu gestirnir úr Vesturbænum sig inn í leikinn. Þeir fengu dauðafæri til að minnka muninn áður en Aron Sigurðarson kom boltanum í netið seint í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Aron skoraði huggulegt mark með góðu skoti utan vítateigs, eftir að hafa snúið inn á hægri fótinn frá vinstri kanti.

Síðari hálfleikurinn fór rólega af stað en áfram héldu heimamenn að nýta sín marktækifæri til hins ýtrasta. Í þetta sinn slapp Örvar Eggertsson einn í gegn eftir sendingu frá Emil og gerði vel að klára.

KR-ingar fengu góð færi til að minnka muninn en tókst ekki að skora fyrr en seint í uppbótartímanum. Hjalti Sigurðsson skoraði með frábærum skalla á 94. mínútu svo lokatölur urðu 4-2 fyrir Stjörnuna.

Garðbæingar fara með góðan sigur af hólmi eftir frábærar upphafsmínútur og klifra upp í fimmta sæti Bestu deildarinnar. Þeir sitja þar með 13 stig eftir 9 umferðir, þremur stigum meira heldur en KR.
Athugasemdir