
Sölvi Snær Ásgeirsson, ungur varnarmaður Grindavíkur, er núna til skoðunar hjá LASK Linz í Austurríki.
Sölvi fór til æfinga hjá félaginu í vikunni og er hann þar til reynslu.
Sölvi fór til æfinga hjá félaginu í vikunni og er hann þar til reynslu.
LASK varð austurrískur meistari á tímabilinu sem er að líða og er eitt stærsta félag landsins.
Sölvi Snær er gríðarlega efnilegur miðvörður sem hefur þrátt fyrir ungan aldur komið við sögu í 20 leikjum með meistaraflokki Grindavíkur og skorað í þeim eitt mark. Í sumar hefur hann spilað þrjá leiki í Lengjudeildinni og tvo í Mjólkurbikarnum.
Sölvi á þá að baki tólf leiki fyrir yngri landslið Íslands og hefur hann skorað í þeim tvö mörk.
Sölvi hefur farið á reynslu til félaga á borð við Lyngby og Real Valladolid. Þá hafa Valur, ÍA og Stjarnan verið með augastað á þessum efnilega leikmanni.
Athugasemdir