Khaldoon Al Mubarak, stjórnarformaður Manchester City á Englandi, segir að félagið hefði átt að vera ágengari á markaðnum síðasta sumar.
Tímabilið hjá Man City var mikil vonbrigði en liðið hafnaði í 3. sæti deildarinnar, datt út í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar og tapaði þá fyrir Crystal Palace í úrslitum enska bikarsins.
Félagið fékk aðeins þá Savinho og Ilkay Gündogan á síðasta ári á meðan Julian Alvarez yfirgaf félagið og samdi við Atlético Madríd.
Al Mubarak segir að félagið hafi gert mistök með því að vera ekki nógu ágengir á markaðnum.
„Þetta er enn eitt árið þar sem ég horfi til baka á síðasta sumar og hugsa að við hefðum átt að vera ágengari í sumum breytingum sem við þurftum að gera. Við gerðum það ekki og það kostaði okkur,“ sagði Al Mubarak.
Man City brást við í janúarglugganum með því að eyða 200 milljónum punda í Abdukodir Khusanov, Vitor Reis, Omar Marmoush og Nico Gonzalez.
Félagið mun missa Kevin de Bruyne og líklega Jack Grealish í sumar og má fastlega gera ráð fyrir því að Man City muni bólstra hópinn vel í glugganum.
Athugasemdir