Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
Uppbótartíminn - Gummi, Maggi Hödd, Snæbjört og Arnar Páll rýna í liðin
Valdimar framlengir í Njarðvík (Staðfest)
Sterkastur í 3. umferð - Ætla rétt að vona það
Jói Kalli: Klárt að það er eitthvað sem við erum að gera rangt
Adam Páls: Var bara kominn tími á að borga til baka
„Kemur að leiknum sem við fáum á okkur minna en tvö mörk“
Sölvi hefur engar áhyggjur af sektum vegna blysa - „Voru einhverjir Blikar í Kópavoginum“
Samúel Kári: Á endanum verður maður líka að hugsa um sjálfan sig
Hemmi hæstánægður með stórsigurinn „Það mega allir halda áfram að blaðra og bulla"
Óskar búinn að æfa skallana - „Þeir eiga ekkert að gleyma mér“
Fyrsta markið fyrir Þór var sérstakt - „Hef skorað mörk hægri vinstri í Noregi"
Siggi Höskulds eftir stóran dag: Ein flottasta varsla sem ég hef séð
Hundóánægður með hugarfar Eyjamanna - „Margir höfðu ekki áhuga á að verjast“
Þurfa að endurmeta undirbúninginn - „Getum ekki boðið fólki upp á þetta"
Aron Sig: Þá er þetta dautt
Óskar Hrafn: Vona að það styttist í að menn haldi einbeitingu í 90 mínútur
Haraldur Freyr um völlinn: Hefur bara hellings áhrif
Stefan Ljubicic: Bara teipað og tvær til þrjár verkjatöflur
Óli ekki með miklar áhyggjur af bitleysi Blika - „Eigum eftir að laga þetta“
Stubbur: Jú jú, það var eitthvað að gera
   fös 15. apríl 2011 09:03
Magnús Már Einarsson
Grétar Rafn: Þetta verður hörkubardagi gegn Stoke
Grétar Rafn Steinsson, hægri bakvörður Bolton, er spenntur fyrir undanúrslitaleiknum gegn Stoke í enska bikarnum á sunnudag. Liðin munu mætast á Wembley klukkan 15:00 og Grétar er bjartsýnn fyrir leikinn.

,,Það verður gaman að mæta Stoke. Þeir eru með hrikalega sterkt lið og það er erfitt við þá að eiga, sérstaklega í föstum leikatriðum,” sagði Grétar við Fótbolta.net.

,,Þeir eru líka með mjög góða leikmenn inn á milli. Þeir hafa breyst svolítið síðan að þeir komu upp og eru með flinkari leikmenn. Þeir geta mixað þessu svolítið með því að spila fótbolta og líka beitt þessum löngu innköstum, hornspyrum og aukaspyrnum inn í boxið.”

,,Við erum líka með fínt lið og þetta verður skemmtileg viðureign. Liðið sem fer í úrslitin á það svo sannarlega skilið.”


Manchester United og Manchester City mætast í hinum undanúrslitaleiknum á morgun en úrslitaleikurinn sjálfur fer fram á Wembley 14. maí.

,,Ég held að bæði við og Stoke teljum okkur eiga ágætis möguleika í þessum leik og þetta verður hörkubardagi jafnt eins og hjá hinum liðunum. Úrslitaleikurinn ætti að verða sérstaklega skemmtilegur.”

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
banner
banner