,,Í byrjun seinni hálfleiks náðum við eiginlega að klára leikinn á mjög erfiðum útivelli svo við erum mjög sáttir við þetta," sagði Matthías Vilhjálmsson fyrirliði FH eftir 1-3 sigur á Grindavíkurvelli í kvöld.
Lestu um leikinn: Grindavík 1 - 3 FH
,,Við skulduðum sjálfum sjálfum okkur og öllum í kringum félagið betri frammistöðu en á móti Fram í síðasta leik. Við vorum bara miklu betra í dag og það var samstaða og liðsheild. Það boðar alltaf gott."
,,Mér fannst fínt veður og frábær ákvörðun hjá KSÍ að fresta þessu um einn dag. Ég fagna því allavega fyrst við unnum."
























