,,Svona er boltinn. Það er ekki alltaf gleði í þessu," sagði Frans Elvarsson leikmaður Keflvíkinga eftir 3-2 tap liðsins gegn KR í kvöld.
Aron Bjarki Jósepsson var hetja KR-inga í leiknum en hann skoraði sigurmarkið í viðbótartíma.
Aron Bjarki Jósepsson var hetja KR-inga í leiknum en hann skoraði sigurmarkið í viðbótartíma.
Lestu um leikinn: Keflavík 2 - 3 KR
,,Það er hrikalega svekkjandi að fá þetta mark á sig í lokin. Mér fannst við vinna okkur vel inn í seinni hálfleikinn og fannst við vera betri í lokin. Það er hrikalega svekkjandi að fá þeta mark á sig en svona er þetta."
Keflvíkingar mæta Víkingi R. og Þór í síðustu tveimur umferðunum en liðið er sem stendur með 21 stig í 7. sætinu, þremur stigum frá falli.
,,Við erum ekkert hólpnir í þessu en ég hef fulla trú á að við klárum þetta, ég hef enga trú á öðru."
Frans var í kvöld að leika sinn þriðja leik í röð í byrjunarliði og hann skoraði sitt fyrsta mark í efstu deild.
,,Mér finnst ég vera að vinna mig inn í úrvalsdeildina. Ég er jákvæður upp á framhaldið að gera og ætla að sanna mig það sem eftir er."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.























