„Þetta náði lengra en ég bjóst við," segir Julian Nagelsmann, þjálfarinn ungi, um viðtal sem hann fór í á dögunum.
Nagelsmann, sem er stjóri Hoffenheim, talaði um möguleikann á að þjálfa Bayern München í viðtalinu.
Nagelsmann, sem er stjóri Hoffenheim, talaði um möguleikann á að þjálfa Bayern München í viðtalinu.
Nagelsmann er aðeins þrítugur og hefur náð eftirtektarverðum árangri með Hoffenheim í Þýskalandi.
Hann hefur verið orðaður við Bayern, en segist ekki vera að sækjast eftir starfinu þrátt fyrir ummæli sem hann lét falla í viðtali Eurosport í vikunni. Hann hefur sent frá sér yfirlýsingu.
„Ég ber mikla virðingu fyrir Carlo Ancelotti."
„Hann á fleiri bikara heldur en ég á af nærbuxum. Ég er búinn að senda honum skilaboð og útskýra það sem ég meinti."
Sjá einnig:
Þrítugur þjálfari orðaður við Bayern Munchen
Athugasemdir