Hector Bellerín meiddist er Arsenal tapaði 3-2 gegn Southampton í ensku úrvalsdeildinni fyrr í dag.
Bellerín var skipt útaf í hálfleik fyrir Alexandre Lacazette, en staðan var 2-1 í hálfleik.
Bellerín meiddist á kálfa í leiknum og verður „líklega frá í nokkrar vikur," samkvæmt Unai Emery, stjóra Arsenal.
Meiðsli halda áfram að herja á varnarmenn Arsenal en Rob Holding, Skhodran Mustafi, Sead Kolasinac og Konstantinos Mavropanos eru allir meiddir. Þá eru Laurent Koscielny og Nacho Monreal nýkomnir úr meiðslum.
Athugasemdir