Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 24. janúar 2019 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Valverde: Sé ekki eftir því að hafa hvílt Messi
Ernesto Valverde
Ernesto Valverde
Mynd: Getty Images
Ernesto Valverde, þjálfari Barcelona á Spáni, sér ekki eftir því að hafa hvíl Lionel Messi í spænska konungsbikarnum í gær en liðið tapaði 2-0 fyrir Sevilla.

Sevilla var töluvert betri aðilinn er liðið vann Barcelona með tveimur mörkum gegn engu en Pablo Sarabia og Wissam Ben Yedder skoruðu mörkin.

Barcelona spilar á heimavelli í síðari leiknum og ljóst að hann fær litla hvíld í þeim leik en Valverde ver þá ákvörðun að hafa hvílt Messi í gær.

„Ég sé ekki eftir því að hafa hvíl Messi. Ég þurfti að gera þetta," sagði Valverde.

„Við verðum að bíða og sjá með síðari leikinn. Ég gerði breytingar í dag og ég taldi það vera besta kostinn en það fylgja oft áhættur þegar maður gerir breytingar," sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner