Heimir Hallgrímsson og hans menn í Al-Arabi töpuðu fyrir Al Gharafa í dag, 2-1.
Al-Arabi var búið að vinna tvo síðustu leiki sína áður en liðið mætti Al Gharafa í dag.
Wilfried Bony kom Al Arabi á bragðið á 2. mínútu Ahmed Alaa Eldin jafnaði fimm mínútum síðar.
Bony skoraði svo óvænt í eigið net á 73. mínútu leiksins og lokatölur því 2-1 fyrir Al Gharafa.
Al Garafa er nú í 7. sæti með 22 stig á meðan Al Arabi er í sætinu fyrir ofan með 27 stig.
Athugasemdir