Haukar spila heimaleiki sína á Hlíðarenda, heimavelli Vals, á næstu leiktíð en þetta var tilkynnt á fréttamannafundi hjá félaginu rétt í þessu.
Þar skrifuðu forráðamenn félaganna undir samning þessa efnis en athygli vekur að félagið fari út fyrir Hafnarfjörð með heimaleiki sína.
Þar skrifuðu forráðamenn félaganna undir samning þessa efnis en athygli vekur að félagið fari út fyrir Hafnarfjörð með heimaleiki sína.
Haukar eru nýliðar í Pepsi-deildinni og mikið hefur verði rætt og ritað um aðstöðu Hauka á Ásvöllum sem þykir ekki klár í efstu deild og talað hefur verið um að liðið leiki heimaleiki sína á Kaplakrikavelli, heimavelli FH.
Úr því verður þó ekki eins og var staðfest á fréttamannafundi á Ásvöllum nú rétt í þessu því liðið mun leika á heimavelli systurfélagsins, Vals næsta sumar.
500 sæta stúka verður sett upp á leikvang Hauka fyrir smærri leikina en aðrir heimaleikir þar sem búist er við fleiri áhorfendum fara fram á Hlíðarenda.
Samningurinn kveður á um að Haukar spili aldrei undir færri en 10 leiki en allt að 15 leiki á heimavelli Vals næsta sumar. Samkomulagið gildir næstu þrjú árin en verður endurskoðað árlega.



