,,Það var mikil spenna í þessu og sérstaklega þar sem það tókst ekki að nýta þessi færi. Við fáum aragrúa af færum og þetta er saga sumarsins, þessi slaka nýting á góðum færum. Það hefði verið rán að standa ekki hér og fagna í leikslok," sagði Sigurður Halldórsson, eða Siggi Donna, þjálfari Tindastóls eftir að liðið tryggði sér sæti í annarri deild í gær.
Tindastóll tapaði reyndar 3-1 gegn Árborg á heimavelli en fór áfram 4-3 samtals. Bjarki Már Árnason fyrirliði Tindastóls skoraði mark Stólanna í gær.
,,Maður er alltaf að reyna að halda því fram að maður sé í vitlausri stöðu og ég held að maður hafi stimplað sig rækilega inn," sagði Bjarki Már sem leikur í vörninni.
Sigurður segir að stefnan sé sett á sigur í úrslitaleiknum gegn Dalvík/Reyni um helgina.
,,Ég vill gullið og menn tóku hressilega undir það þegar mér var hent inn í sturtu. Ég þessi öfluga lögga átti ekkert í þessa gæa."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
























