Gunnleifur Gunnleifsson markmaður FH var sáttur í lok leiks eftir sigur á Selfossi. Sigurinn var kannski ekki sá sanngjarnasti og hafa FH oft spilað betur en þeir gerðu í kvöld.
,,Já þetta var klárlega ekki fallegustu þrjú stigin sem við höfum tekið í sumar en við tökum þau engu að síður og svona þegar maður er með eins marks forystu að þá er alltaf hætta á að fá það í bakið og við gerðum það en vorum fljótir að koma til baka. Við getum náttúrlega gert mikið betur " sagði Gunnleifur í samtali við Fótbolta.net eftir leikinn.
Nánar er rætt við Gunnleif í sjónvarpinu hér að ofan.























