Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 01. maí 2020 16:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gengu frá samningi við Aron og Kristbjörgu á Instagram
Aron og eiginkona hans, Kristbjörg, eru að styrkja Þór.
Aron og eiginkona hans, Kristbjörg, eru að styrkja Þór.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hjónin Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyrirliði, og Kristbjörg Jónasdóttir, fitnessdrottning, gáfu út húðvörulínu í desember sem heitir AK Pure Skin.

Aron og Kristbjörg ákváðu í síðasta mánuði að gerast styrktaraðilar Þórs á Akureyri, uppeldisfélags Arons. Merki húðvörulínunnar er komið framan á nýja búninga Þórsara.

Óðinn Svan Óðinsson, formaður knattspyrnudeildar Þórs, lýsti því í útvarpsþættinum Fótbolta.net hvernig samningar náðust við landsliðsfyrirliðann.

„Eimskip hefur verið aðalstyrktaraðili knattspyrnudeildar í einhver tíu ár. Sá samningur rann út og það var ekki vilji til að framlengja hann núna. Við þurftum að leita annað," sagði Óðinn.

„Ég henti skilaboðum á Aron á Instagram og var búinn að 'photoshop-a' merkið á fyrirtæki hans á búningana okkar. Ég spurði hann hvort að þetta væri ekki málið? Hann svaraði: 'Að sjálfsögðu'. Við kláruðum þennan samning á Instagram."

„Hann hefur mikinn áhuga, fylgist vel með og vildi leggja sitt af mörkum."
Útvarpsþátturinn - Þórsarar og Magni Grenivík
Athugasemdir
banner
banner