Sigurbjörn Örn Hreiðarsson spilandi aðstoðarþjálfari Hauka var í borgaralegum klæðum á hliðarlínunni í dag er Haukar báru sigur úr bítum í viðureign sinni gegn Fjölni 1-0. Hann var að vonum ánægður með sigurinn og að hafa haldið hreinu.
Lestu um leikinn: Haukar 1 - 0 Fjölnir
,,Það gekk ekki nægilega vel að klára færin í fyrri hálfleik. Ég var ekkert alveg öruggur á að sigurmarkið myndi koma en það kom sem betur fer og það var glæsilegt hjá Hilmari (Rafn Emilssyni). Mér fannst við ekki ógna nóg í seinni hálfleik til að gera annað mark svo það var sterkt hjá strákunum að halda markinu hreinu," sagði Sigurbjörn.
,,Mér fannst þetta sanngjarnt. Þetta var baráttuleikur en mér fannst við aðeins ofan á í þessum leik," sagði Sigurbjörn sem er ánægður að fyrsta framherja markið sé komið hjá Haukum í sumar,
,,Það er mjög flott. Hilmar Rafn er auðvitað baneitraður og Magnús Páll líka þegar þeir fá réttu boltana. Hilmar gerði þetta frábærlega í markinu og þetta styrkir hann. Hann hefur auðvitað aldrei náð mörgum leikjum í röð og kemst aldrei í almennilegan takt en við skulum vona að það sé að koma hjá honum," sagði Sigurbjörn sem segir það einnig jákvætt að í lið Hauka spiluðu tveir leikmenn sem hafa verið í meiðslum að undanförnu, Helgi Valur Pálsson og Andri Steinn Birgisson sem báðir styrkja Haukaliðið.
Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.






















