Chelsea bætist í kapphlaupið um Nunez - City tilbúið að borga 70 milljónir fyrir Livramento - Liverpool og Real Madrid slást um Schlotterbeck
   mán 02. mars 2026 12:18
Kári Snorrason
FCK í neðri hluta í fyrsta sinn - „Vorum með hausinn upp í rassgatinu á okkur alltof lengi“
Viktor Bjarki Daðason og Rúnar Alex Rúnarsson eru leikmenn FCK.
Viktor Bjarki Daðason og Rúnar Alex Rúnarsson eru leikmenn FCK.
Mynd: EPA
Jacob Neestrup og Orri Steinn Óskarsson í viðureign FCK og Breiðabliks árið 2023.
Jacob Neestrup og Orri Steinn Óskarsson í viðureign FCK og Breiðabliks árið 2023.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ríkjandi Danmerkurmeistarar FC Kaupmannahöfn munu koma til með að leika í neðri helming dönsku úrvalsdeildarinnar nú þegar tvískiptingin er að ganga í garð.

Liðið tapaði 1-2 gegn Parken í gærdag og þar með voru örlög liðsins ljós. Félagið hefur aldrei leikið í neðri hluta deildarinnar eftir að tvískiptingin var tekin upp árið 2019.

Jakob Neestrup, þjálfari FCK, var vægast sagt ósáttur við niðurstöðuna og lét gamminn geisa í viðtali eftir leik:

„Það er erfitt að setja þetta í orð. Mér finnst þetta vera verðskuldað. Þetta kemur okkur ekki á óvart. Við höfum átt slakar frammistöður og lagt okkur of lítið fram í alltof mörgum leikjum.

Við höfum haft hausinn upp í rassgatinu á okkur alltof lengi og lifað á gömlum afrekum, tvöföldum titli og sæti í Meistaradeildinni,“
sagði sá danski eftir leik.

FCK á þó enn góða möguleika að ná í Evrópusæti en liðið vann Viborg 2-1 í fyrri leik liðanna í undanúrslitum danska bikarsins. Sigur í bikarnum gefur sæti í forkeppni Evrópudeildarinnar.

Fari svo að liðið tapi í bikarnum getur liðið þó enn tryggt sér í forkeppni Sambandsdeildarinnar með því að enda í 7. sæti og vinna liðið sem endar í 3. sæti í Evrópuumspili.
Athugasemdir
banner
banner