Heimild: Irish Times
Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Írlands, ræddi við írskan blaðamann um möguleikann á því að Roy Keane hefði tekið við landsliðinu í stað Lars og Heimis árið 2011.
Keane er einn albesti fótboltamaður Írlands frá upphafi en hann var sterklega orðaður við landsliðsþjálfarastarfið á Íslandi. Það var m.a. beðið eftir honum á Leifsstöð fyrir leik Íslands og Kýpur en hann var hvorki sjáanlegur á flugvellinum né á Laugardagsvelli á leiknum.

„Þetta er nú saga fyrir ykkur. Það var mikið rætt um að Roy Keane tæki við liðinu. Gunnar Þór Gíslason, fyrrverandi formaður KSÍ sem þá var framkvæmdastjóri Stoke, hafði rætt við hann.
Að lokum var Lars ráðinn. Við vorum í 124 sæti á styrkleikalista FIFA þegar hann tók við en í 18 sæti þegar ég lét af störfum,“ sagði Heimir að lokum.
Írland mætir Tékklandi í undanúrslitum umspils um sæti á HM síðar í mánuðinum. Skyldi Írland vinna Tékka þá mæta þeir annað hvort Norður-Makedóníu eða Danmörku í úrslitaleik um sæti á HM.
Athugasemdir