Chelsea bætist í kapphlaupið um Nunez - City tilbúið að borga 70 milljónir fyrir Livramento - Liverpool og Real Madrid slást um Schlotterbeck
   mán 02. mars 2026 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Fernandes tók fram úr Beckham
Mynd: EPA
Bruno Fernandes skoraði og lagði upp í 2-1 sigri Manchester United á Crystal Palace á Old Trafford í gær en hann kom sér í sögubækurnar með frammistöðunni.

Fernandes hjálpaði United að koma til baka í leiknum með vítaspyrnumarki og laglegri stoðsendingu á Benjamin Sesko sem gerði sigurmarkið.

Þetta er 18. deildarleikurinn sem Fernandes skorar og leggur upp í síðan hann kom frá Sporting árið 2020.

Hann tók fram úr United-goðsögninni David Beckham sem náði þessu afreki sautján sinnum á ferlinum.

Næsta markmið Fernandes er að ná þeim Ryan Giggs og Wayne Rooney.

Giggs skoraði og lagði upp í 22 leikjum með United en Rooney í 35 leikjum.


Athugasemdir
banner
banner