FC Kaupmannahöfn hefur gefið það út að félagið sé að leita að nýjum yfirmanni fótboltamála. Sune Smith-Nielsen, sem hefur gegnt undanfarin misseri, hefur verið látinn taka pokann sinn í kjölfarið á mjög svo slökum árangri liðsins.
„Því miður verðum við að segja að á þessu tímabili höfum við hvorki séð framfarir né úrslit sem við bjuggumst við," segir í yfirlýsingu frá stjórn FCK.
Danskir fjölmiðlar hafa fjallað um það síðustu vikur að það sé krísa í Kaupmannahöfn. FCK, sem hefur verið stærsta félag Danmerkur í fjöldamörg ár, er í hættu á því að vera í neðri hluta dönsku úrvalsdeildarinnar þegar hún skiptist í byrjun næsta mánaðar.
Liðið situr í sjöunda sæti þegar ein umferð er í að deildin skiptist í tvo hluta, líkt og er gert hér á Íslandi í Bestu deildinni. FCK er í alvöru hættu á að vera í neðri hlutanum og vonin um að vinna danska meistaratitilinn er í buskanum.
FCK er með mesta fjármagnið í dönskum fótbolta en því hefur ekki verið varið og því er Smith-Nielsen búinn að missa starfið sitt.
Viktor Bjarki Daðason hefur líklega verið ljósasti punkturinn í liði FCK á þessu tímabili.
Athugasemdir


