Hinn litríki og reynslumikli Neil Warnock er kominn aftur í þjálfun, 77 ára að aldri, en hann er tekinn við Torquay United sem spilar í sjöttu efstu deild á Englandi.
Paul Wotton var látinn taka poka sinn hjá Torquay eftir tveggja ára dvöl og samþykkti Warnock að taka við liðinu til bráðabirgða.
Leikmannahópurinn er þarna að fá inn mann sem er hokinn af reynslu, en Warnock hefur stýrt liðum á borð við Crystal Palace, Huddersfield Town, QPR og Leeds United.
Þetta verður fyrsta stjórastarf Warnock síðan 2024 er hann stýrði skoska liðinu Aberdeen til bráðabirgða.
„Torquay United óskar Paul góðs gengis í því sem hann tekur sér fyrir hendur í framtíðinni. Neil Warnock mun stýra liðinu gegn Farnborough á þriðjudag og í kjölfarið munum við uppfæra ykkur nánar um stjóramálin síðar,“ segir í yfirlýsingu Torquay.
Torquay er í 4. sæti í suðurhluta deildarinnar með 57 stig, tíu stigum frá toppsætinu.
BREAKING: Neil Warnock will take charge of Torquay United following the departure of Paul Wotton ???? pic.twitter.com/bTyiZj3FeQ
— Sky Sports News (@SkySportsNews) March 1, 2026
Athugasemdir


