Englandsmeistarar Liverpool hafa sett upp fjögurra manna óskalista fyrir miðvarðarstöðuna í sumarglugganum en þetta segir TeamTalk.
Liverpool þarf nauðsynlega að styrka varnarlínuna fyrir næsta tímabil.
Ibrahima Konate er að renna út á samningi og þá virðist Joe Gomez ekki eiga framtíð hjá félaginu, en það hefur verið erfitt að treysta á Englendinginn sem hefur misst af mörgum leikjum á tíma sínum hjá Liverpool vegna meiðsla.
Liverpool er búið að ganga frá kaupum á franska ungstirninu Jeremy Jacquet frá Rennes. Hann kemur í sumar og þá snýr Giovanni Leoni aftur eftir krossbandsslit. Virgil van Dijk er 34 ára gamall og á aðeins eitt ár eftir og þarf því að bólstra hópinn og undirbúa lífið eftir hann.
Félagið ætlar að sækja að minnsta kosti einn miðvörð í sumarglugganum og verður sá leikmaður með reynslu, en TeamTalk segir félagið með fjóra menn á lista.
Það er Micky van de Ven hjá Tottenham sem virðist líklegasti kosturinn, en hann gæti yfirgefið félagið í sumar eftir afar slakt tímabil hjá Lundúnafélaginu.
Alessandro Bastoni hjá Inter er nafn sem hefur oft verið í umræðunni. Sá er að spila vel með ítalska liðinu og gæti myndað sterkt miðvarðarpar með samlanda sínum, Leoni.
Murillo hjá Nottingham Forest er annað nafn á listanum, en sá hefur spilað glimrandi vel í ensku úrvalsdeildinni og verður eflaust á ratsjá margra félaga í sumarglugganum.
Fjórði og síðasti leikmaðurinn á listanum er Nico Schlotterbeck hjá Borussia Dortmund. Þjóðverjinn verður samningslaus á næsta ári, en hann hefur einnig verið orðaður við Real Madrid á Spáni.
Athugasemdir


