Hjörvar Hafliðason vakti athygli á því í Dr. Football þætti gærdagsins að Keflavík hefði áhuga á því að fá markvörðinn Þórhall Ísak Guðmundsson frá Þrótti.
Þórhallur (1999) hefur verið aðalmarkvörður Þróttar síðustu tvö tímabil. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net bauð Keflavík í Þórhall en tilboðinu var hafnað - hann verður að óbreyttu hjá Þrótti í sumar. Hjá Þrótti er Þórhallur í samkeppni við Aron Dag Birnuson sem kom á láni frá Stjörnunni í vetur.
Keflavík virðist vera í leit að markmanni og hefur verið fjallað um að Sindri Kristinn Ólafsson (1997) gæti haldið til Svíþjóðar þar sem kærasta hans, landsliðskonan Guðrún Arnardóttir, er búsett og spilar með Hammarby.

Hinn efnilegi Ásgeir Orri Magnússon (2004) er að snúa til baka á völlinn eftir krossbandsslit og yrði hlutverk nýs markvarðar væntanlega að veita honum samkeppni um aðalmarkvarðarstöðuna í sumar - að því gefnu að Sindri haldi til Svíþjóðar.
Athugasemdir