Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 02. september 2019 13:10
Magnús Már Einarsson
Asmir Begovic á leið til Qarabag
Mynd: Getty Images
Asmir Begovic, markvörður Bournemouth, er á leið til Qarabag í Aserbaídsjan á láni.

Hinn 32 ára gamli Begovic er þriðji markvörður Bournemouth á eftir þeim Aaron Ramsdale og Artur Boruc.

Begovic vildi komast annað til að fá að spila en hann er nú á leið til Qarabag á láni en lánssamningurinn gildir í hálft ár til að byrja með.

Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórsson var á mála hjá Qarabag á síðasta tímabili áður en hann gekk í raðir Vals í vor.
Athugasemdir
banner
banner
banner