Stones gæti farið aftur til Everton - Salah tekur Tyrkland fram yfir Sádi-Arabíu - Vicario á förum frá Tottenham
   fös 01. maí 2026 19:33
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Hádramatísk endurkoma hjá Atla og félögum
Mynd: Songdal
Atli Barkarson var í byrjunarliði Sogndal þegar liðið gerði 3-3 jafntefli gegn Bryne í 5. umferð í næst efstu deild í Noregi.

Bryne náði þriggja marka forystu en Sogndal minnkaði muninn á 68. mínútu og þeim tókst að skora tvö mörk seint í uppbótatíma og næla í stig. Atli var tekinn af velli á 81. mínútu. Sogndal er í 12. sæti með fjögur stig.

Hinrik Harðarson kom inn á í lokin þegar Odd vann 1-0 sigur á Raufoss. Odd er á toppnum með 13 stig.

Hilmir Rafn Mikaelsson var ónotaður varamaður þegar Viking vann 3-0 sigur á Rosenborg í efstu deild í Noregi. Viking er í 2. sæti með 18 stig eftir sjö umferðir. Liðið á leik til góða á Tromsö sem er stigi á undan.

Adam Ingi Benediktsson var í markinu þegar AB Kaupmannahöfn vann 3-2 sigur á Roskilde í C-deildinni í Danmörku. AB er á toppnum með 59 stig eftir 26 umferðir. Liðið er átta stigum á undan Vendsyssel og ellefu stigum á undan Naestved.

Tvö efstu liðin tryggja sér sæti í B-deildinni en það eru sex umferðir eftir.

Ólafur Dan Hjaltason var ónotaður varamaður þegar Aarhus Fremad vann 1-0 sigur á Middelfart í B-deildinni. Liðið er í 8. sæti með 36 stig eftir 36 umferðir.

Aron Einar Gunnarsson var ónotaður varamaður þegar Al-Gharafa tryggði sér sæti í undanúrslitum Emir bikarsins í Katar með 2-1 sigur á Umm-Salal.
Slapp
banner
banner
banner