Stones gæti farið aftur til Everton - Salah tekur Tyrkland fram yfir Sádi-Arabíu - Vicario á förum frá Tottenham
   fös 01. maí 2026 15:40
Brynjar Ingi Erluson
Yfirgefur Bournemouth og heldur líklega til Sádi-Arabíu
Simon Francis var áður fyrirliði Bournemouth
Simon Francis var áður fyrirliði Bournemouth
Mynd: EPA
Simon Francis, tæknilegur stjórnandi Bournemouth á Englandi, mun yfirgefa félagið eftir tímabilið en hann er líklega að taka við stjórnunarstöðu í Sádi-Arabíu.

Francis, sem var áður fyrirliði Bournemouth, tók við sem tæknilegur stjórnandi hjá félaginu árið 2024.

Hann starfaði áður með Richard Hughes og unnið mjög gott starf hjá enska félaginu.

Athletic segir frá því að Francis sé á förum frá Bournemouth í sumar og hann gæti mögulega tekið við svipuðu starfi hjá Al Hilal í Sádi-Arabíu.

Hann verður annar til þess að yfirgefa Bournemouth í sumar, en Andoni Iraola, stjóri félagsins, mun fara þegar samningur hans rennur út eftir tímabilið.

Hughes, sem er yfirmaður íþróttamála hjá Liverpool, hefur einnig verið orðaður við Al Hilal, en hann er samningsbundinn enska félaginu til 2027 og er Liverpool að gera ráð fyrir að hann haldi kyrru fyrir í sumar.
Slapp
banner
banner
banner