Það var stutt í grínið hjá Pep Guardiola, stjóra Manchester City, er hann var spurður út í óvænta viðveru sína á leik Stockport County gegn Mansfield Town í ensku C-deildinni á þriðjudag.
Guardiola sást í stúkunni á leiknum hjá Stockport, en íslenski framherjinn Benoný Breki Andrésson er á mála hjá félaginu.
Benoný var að vísu á meiðslalistanum hjá Stockport, en það furðuðu sig margir á því hvað Guardiola væri að gera á þessum leik á sama tíma og Paris Saint-Germain var að mæta Bayern München í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.
„Daginn áður sá ég dagskránna og sá að PSG og Bayern væru að fara mætast og hugsaði hvað það væri ömurlegur leikur. Stjórarnir eru ekki góðir, þeir Luis og Vini. Það eru líka ömurlegir leikmenn þarna og ég elska enskan fótbolta þannig ég ákvað að fara til Stockport. Á næsta ári, þegar Bayern mun spila gegn mínu gamla liði, mun ég sitja fremstur á sófanum,“ sagði Guardiola, sem var augljóslega að grínast.
???? Pep Guardiola explains why he was in attendance at Stockport-Port Vale on same night as PSG-Bayern.
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) May 1, 2026
“I saw the calendar, PSG-Bayern, I said what a disaster game, sh*t managers, bad players…”. ????
“I love English football and I went to Stockport!”.@BeanymanSports ???? pic.twitter.com/kxcNRlkCA2



