Stones gæti farið aftur til Everton - Salah tekur Tyrkland fram yfir Sádi-Arabíu - Vicario á förum frá Tottenham
   fös 01. maí 2026 15:12
Brynjar Ingi Erluson
Réðu bardagakappa til að hjálpa með föstu leikatriðin
Fabian Hürzeler fer öðruvísi leiðir þegar það kemur að þjálfun
Fabian Hürzeler fer öðruvísi leiðir þegar það kemur að þjálfun
Mynd: EPA
Fabian Hürzeler, stjóri Brighton, hefur staðfest að félagið hafi fengið inn bardagakappa í blönduðum bardagalistum (MMA) til að prófa nýja tækni í föstum leikatriðum.

Miðjumaðurinn Jack Hinshelwood sagði í viðtali við BBC á dögunum hvað hann væri hrifinn af því hvað Hürzeler væri frumlegur og greindi þar frá því að hann hafi fengið bardagakappa á æfingasvæðið.

Hürzeler staðfesti þetta á blaðamannafundinum fyrir leikinn gegn Newcastle United, en vildi þó ekki nafngreina bardagakappann.

„Við fengum hann því við höfum rætt mikið um föst leikatriðið, blokkeringar og nýja tísku í ensku úrvalsdeildinni. Við erum að reyna aðlagast því við viljum ekki vera þekktir fyrir að vera of næs.“

„Á ákveðnum augnablikum verður maður að vera harður af sér í einvígum. Það er hægt að beita líkama og hæfileikum á mismunandi vegum til þess að vinna einn á einn og sérstaklega í föstum leikatriðum. Bardagakappar í MMA eru alltaf í einn á einn og þeirra vinna er að finna leiðir til þess að sigra andstæðinginn. Við elskum að sækja hugmyndir úr öðrum íþróttum.“

„Við erum með einhverjar hugmyndir sem hafa reynst okkur hjálplegar til að nota sem lið. Við höfum aldrei verið þekktir fyrir að vera með yfirráð í föstum leikatriðum eða sækja leikmenn sem henta þeim atriðum þannig við þurfum að vera svolítið frumlegir í þessu.“

„Við viljum ekki tapa auðveldlega þegar við mætum hávaxnari liðum. Við erum kannski með þann eiginleika, en það eru alltaf til leiðir til að verjast og sækja í einn á einn einvígum. Þess vegna erum við að reyna að nýta öðruvísi tækni, eins og í MMA,“
sagði hann.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 22 7 5 64 26 +38 73
2 Man City 33 21 7 5 66 29 +37 70
3 Man Utd 34 17 10 7 60 46 +14 61
4 Liverpool 34 17 7 10 57 44 +13 58
5 Aston Villa 34 17 7 10 47 42 +5 58
6 Brighton 34 13 11 10 48 39 +9 50
7 Bournemouth 34 11 16 7 52 52 0 49
8 Chelsea 34 13 9 12 53 45 +8 48
9 Brentford 34 13 9 12 49 46 +3 48
10 Fulham 34 14 6 14 44 46 -2 48
11 Everton 34 13 8 13 41 41 0 47
12 Sunderland 34 12 10 12 36 45 -9 46
13 Crystal Palace 33 11 10 12 36 39 -3 43
14 Newcastle 34 12 6 16 46 50 -4 42
15 Leeds 34 9 13 12 44 51 -7 40
16 Nott. Forest 34 10 9 15 41 45 -4 39
17 West Ham 34 9 9 16 42 58 -16 36
18 Tottenham 34 8 10 16 43 53 -10 34
19 Burnley 34 4 8 22 34 68 -34 20
20 Wolves 34 3 8 23 24 62 -38 17
Slapp
banner
banner
banner