Beðið eftir þessum leik í 24 ár
Það eru tveir risa leikir framundan í Bestu deildinni á morgun. Fyrri leikur dagsins er á Akureyri þar sem Þór og KA eigast við. „Það er svona öld í næsta deildarleik hjá KA og Þór," söng rapparinn Saint Pete í stuðningsmannalagi KA. Svo er ekki því í dag munu þessi lið mætast í Bestu deildinni.
Til þess að hita upp fyrir þessa tvo leiki heyrðum við í stuðningsmönnum þessara fjögurra liða og fengum þeirra álit á leikjunum. Svo var einnig haft samband við hlutlausan sérfræðing sem skilaði af sér faglegri spá. Við byrjum á að heyra hvað stuðningsmenn Þórs og KA höfðu að segja.
Til þess að hita upp fyrir þessa tvo leiki heyrðum við í stuðningsmönnum þessara fjögurra liða og fengum þeirra álit á leikjunum. Svo var einnig haft samband við hlutlausan sérfræðing sem skilaði af sér faglegri spá. Við byrjum á að heyra hvað stuðningsmenn Þórs og KA höfðu að segja.
Aron Elvar Finnsson, stuðningsmaður Þórs
1. Hvernig finnst þér byrjunin hafa verið hjá þínum mönnum?
Byrjunin hefur bara verið mjög góð. Þessi sigur á Val í fyrsta leik var ekkert minna stórkostlegur og bjó til mikla stemningu í Þorpinu. Svo mættum við KR-liði sem var einfaldlega bara miklu betra liðið í þeim leik, það verður bara að viðurkennast. Það eru ekkert mörg lið sem ráða við KR þegar þeir hitta á svona dag. Fram heima var sá leikur af þessum fyrstu 4 sem maður horfði helst á upp á að ná í stig og það var bæði skemmtilegt og mikilvægt að vinna þá í fyrsta heimaleiknum okkar. Við verðum að reyna að gera heimavöllinn að vígi. Svo fannst mér 4-0 ekki gefa alveg rétta mynd af Blikaleiknum, við áttum að skora 3-4 mörk í þeim leik en sigur Blika líklega verðskuldaður samt. Við hristum hann af okkur og mætum fullir sjálfstraust í grannaslaginn!
2. Hvernig er tilfinningin fyrir leiknum?
Úff þetta er einhver blanda af óbærilegri spennu og kvíða. Maður hefur eiginlega ekki hugsað um neitt annað í ansi langan tíma. Ef það er eitthvað sem þessi lið gjörsamlega hata þá er það að tapa fyrir grönnunum svo þessi leikur á eftir að verða eitthvað. Það seldist upp hratt og það verða eins margir á vellinum og við gátum. Ég get algjörlega lofað því að stemningin verður frábær og ég vona að liðin bjóði upp á svipaða veislu innan vallar. Fyrir Akureyri er þetta auðvitað stórkostlegt, þarna verða vinir, vinnufélagar, skyldmenni og fleira óvinir í ca 2 klukkutíma og það er eitthvað mjög fallegt við það. Svo fer það bara eftir því hvernig leikurinn fer hversu langan tíma það tekur að sættast.
3. Þín faglega spá?
Það er ekkert leyndarmál að Þórsliðið hefur litið betur út en KA í upphafi móts. Við unnum þá svo í vítaspyrnukeppni rétt fyrir mót þegar við vörðum hinn virta Kjarnafæðisbikar og vorum að mínu mati betri aðilinn í þeim leik, ég er náttúrlega algjörlega hlutlaus. Þetta allt skiptir hins vegar engu máli á laugardaginn - sá leikur hefur gjörsamlega sitt eigið líf og ekkert sem á undan hefur gengið hefur áhrif. Ég spái dramatík, 3-2 sigur Þórs. Isaac Atanga verður erfiður fyrir KA-menn, skorar fyrsta og leggur upp annað markið fyrir Fúsa. Hallgrímur Mar leggur upp tvö hinum megin en það verður svo Fannar Daði Malmquist sem skorar sigurmarkið í blálokin en rífur sig ekki úr að ofan þar sem hann verður kominn með gult spjald. Markmennirnir verða í aðalhlutverki enda báðir toppmenn, Aron Birkir og Stubburinn verja eins og berserkir í þessum leik og munu ekki geta gert neitt í mörkunum.
Egill Sigfússon, stuðningsmaður KA
1. Hvernig finnst þér byrjunin hafa verið hjá þínum mönnum?
Spilamennskan gegn Stjörnunni og Víking var heilt yfir nokkuð góð og óheppnir að tapa þeim báðum. Spilamennskan fyrstu 60 mín gegn ÍA og allan leikinn gegn Keflavík var algjörlega óboðleg. Byrjunin er ömurleg enn eitt árið en nú vil ég sjá liðið byrja strax á laugardaginn að detta á alvöru run og koma sér í efri hlutann þar sem við eigum heima.
2. Hvernig er tilfinningin fyrir leiknum?
Tilfinningin fyrir þessum leik á laugardag er mjög góð, maður er búinn að bíða eftir þessu í ótrúlega langan tíma. Nú fá menn að sjá alvöru grannaslag í fyrsta skipti í 24 ár í efstu deild, það á enginn leikur roð í þennan slag.
3. Þín faglega spá?
Mín faglega spá er sú að KA vinnur þennan leik 1-3 þar sem Oliver skorar 2 og Djuric skorar eitt í lokin sem tryggir þetta. Ætli Atli Sigurjóns skori ekki fyrir Þór?
Óðinn Svan Óðinsson, stuðningsmaður Þórs
1. Hvernig finnst þér byrjunin hafa verið hjá þínum mönnum?
Bara frábær. Siggi hefur verið óhræddur við að láta ungu strákana okkar fá lykil hlutverk í liðinu og þeir hafa tekið það verkefni eins og kóngar. Sex stig er þessum fjórum leikjum er bara frábær uppskera.
2. Hvernig er tilfinningin fyrir leiknum?
Þetta eru eiginlega allar tilfinningarnar. Spenna, eftirvænting, smá kvíði en líka bara stolt. Þetta er búið að vera markmið í rúman áratug og það er geggjað að sjá það verða að veruleika.
3. Þín faglega spá?
Ég spái þessu 0-1. Fannar Mall kemur inná of skorar winner á 96. mínútu.
Haraldur Örn Haraldsson, stuðningsmaður KA
1. Hvernig finnst þér byrjunin hafa verið hjá þínum mönnum?
Fyrstu tveir leikirnir voru flottur spilanlega séð þó að úrslitin hafi ekki fallið með okkur. Spilum svo fyrsta slaka hálfleik tímabilsins í fyrri hálfleik gegn skaganum í þriðja leik, en gerum vel að koma til baka í seinni. Síðasti leikur hins vegar gegn Keflavík var algjört afhroð. Þannig í heildina hefur þetta verið vonbrigðar stigasöfnun en vonandi getum við sagt að við höfum byrjað vel spilanlega, og þessi Keflavíkur leikur var bara frávik.
2. Hvernig er tilfinningin fyrir leiknum?
Ég er gríðarlega spenntur fyrir leiknum, og það eru bara allir Akureyringar nær og fjær. Jafnvel bara fótboltaáhugamenn sem eru spenntir. Maður fagnaði nú ekki þegar Þórsarar komust upp en það er ágætis sárabót að fá að vinna þá tvisvar á tímabilinu í staðin.
3. Þín faglega spá?
KA menn koma ekkert smá gíraðir í leikinn, tilbúnir að bæta upp fyrir síðasta leik sem þeir skammast sín allir fyrir. Grímsi verður kominn aftur í byrjunarliðið, og hann setur tvö í fyrri. Þórsarar þurfa að sækja þá töluvert í seinni, en Jakob Héðinn drepur þá á counterinu, og setur þriðja áður en Djuric skorar fjórða eftir að hafa komið af bekknum. Vörnin hjá KA ekkert verið neitt sérstök þannig ætli Þór fái ekki eitt sárabótamark í uppbótartíma. Þannig þetta endar 4-1 fyrir KA
Baldur Sigurðsson, hlutlaus sérfræðingur
Ég er fáranlega spenntur fyrir þessum leik. Það spenntur að ég ætla norður að sjá leikinn. Það er augljós staðreynd að gengi liðanna hefur verið ólíkt í byrjun. Þórsararnir hafa komið vel gíraðir og stemmdir inn í mótið eins og kannski mátti búast við af þeim á meðan KA eru svekktir með sína byrjun. Þetta gerir leikinn bara enn áhugaverðari fyrir vikið. Ég sé ekkert annað í stöðunni en að þessi leikur verði besti leikur umferðarinnar með flestu mörkin, flestu gulu spjöldin, flestu rauðu spjöldin og flestu umdeildu dómana. Leikurinn fer 3-3 þar sem Atli Sigurjóns skorar þrennu fyrir Þór á meðan Hallgrímur svarar í sömu mynt hinu megin!




