Það hefur verið mikil dramatík í kringum Enzo Fernandez, miðjumann Chelsea, á þessu tímabili en hann var í agabanni og missti af tveimur leikjum eftir að hafa tjáð sig um drauminn að búa í Madrid.
Fernandez hefur verið orðaður við Real Madrid en hann sást í Madrid á tennis mótinu Madrid Open með liðsfélögum sínum Marc Cucurella og Joao Pedro en þar hittu þeir Jude Bellingham, miðjumann Real Madrid.

„Þeir fengu þriggja daga frí. Það segir mikið um hópinn að þeir fari saman. Ég elska að þeir hafi eytt tíma saman," sagði Calum McFarlane, bráðabirgðastjóri Chelsea.
„Þeir fóru til Madrídar til að horfa á tennis. Ég sé ekki vandamálið. Hann var þarna í fyrra með liðsfélögunum. Þeir eyddu tíma saman þegar þeir voru síðast í fríi. Ég tel að það sé jákvætt fyrir samheldnina í hópnum."