Stones gæti farið aftur til Everton - Salah tekur Tyrkland fram yfir Sádi-Arabíu - Vicario á förum frá Tottenham
   fös 01. maí 2026 13:55
Brynjar Ingi Erluson
Segir Liverpool í viðræðum um Wharton
Mynd: EPA
Ítalski blaðamaðurinn Matteo Moretto fullyrðir að Liverpool sé búið að setja sig í samband við Crystal Palace um enska miðjumanninn Adam Wharton.

Wharton er 22 ára gamall landsliðsmaður Englands sem er á ratsjá margra stórliða.

Það er fastlega gert ráð fyrir að hann yfirgefi Palace í sumarglugganum, en Manchester United og Real Madrid hafa verið sögð leiða kapphlaupið um hann.

Liverpool hefur skráð sig í baráttuna en Moretto sagði á RadioMarca að félagið væri búið að setja sig í samband við Palace og umboðsmenn Wharton.

Wharton vill vera áfram í ensku úrvalsdeildinni sem gefur Liverpool og Man Utd forskot í baráttunni. Hann kom til Palace frá Blackburn Rovers fyrir 22 milljónir punda árið 2024 en í dag er hann metinn á um það bil 100 milljónir.

Liverpool ætlar að gera hreinsun á miðsvæðinu í sumar, en Alexis Mac Allister og Curtis Jones gætu farið frá félaginu.
Slapp
banner
banner