Stones gæti farið aftur til Everton - Salah tekur Tyrkland fram yfir Sádi-Arabíu - Vicario á förum frá Tottenham
   fös 01. maí 2026 16:22
Brynjar Ingi Erluson
Bjarki Steinn aftur upp í Seríu A
Bjarki Steinn er kominn aftur í Seríu A
Bjarki Steinn er kominn aftur í Seríu A
Mynd: Venezia FC
Bjarki Steinn Bjarkason og félagar í Venezia eru komnir beint aftur upp í Seríu A en liðið tryggði sæti sitt þangað þegar ein umferð er eftir af deildinni.

Venezia féll úr Seríu A á síðustu leiktíð og settu sér það markmið að fara beint upp.

Bjarki var byrjunarliðsmaður í byrjun tímabils en meiddist í desember og missti af mörgum leikjum.

Mosfellingurinn sneri aftur í hópinn í síðasta mánuði, en lítið fengið að spila.

Venezia þurfti aðeins eitt stig til að komast upp þar sem liðin í kring töpuðu stigum og tókst það gegn Spezia, en leiknum lauk með 2-2 jafntefli.

Venezia er að fara að spila í þriðja sinn í Seríu A. Það lék þar síðast á síðustu leiktíð og síðan tímabilið 2021-2022, en í bæði skiptin féll liðið niður um deild.

Giovanni Stroppa, þjálfari Venezia, er að fara upp í Seríu A í fjórða sinn, en hann hefur einnig verið upp með Crotone, Cremonese og Monza.


Slapp
banner
banner
banner