Stones gæti farið aftur til Everton - Salah tekur Tyrkland fram yfir Sádi-Arabíu - Vicario á förum frá Tottenham
   fös 01. maí 2026 13:09
Brynjar Ingi Erluson
Enrique svarar gagnrýni - „Þetta er glötuð skoðun“
Luis Enrique
Luis Enrique
Mynd: EPA
Luis Enrique, þjálfari Paris Saint-Germain í Frakklandi, segist ekki gefa mikið fyrir gagnrýni á varnarleik liðsins og Bayern í fyrri undanúrslitaleik Meistaradeildarinnar í vikunni.

Leikur PSG og Bayern var einn sá skemmtilegasti á þessari leiktíð, en liðin hafa verið gagnrýnd fyrir varnarleikinn.

Enrique er viss um að flestir hafi notið þess að horfa á leikinn, en auðvitað séu skoðanir fólks mismunandi.

PSG vann leikinn 5-4, en liðin eigast aftur við á Allianz-leikvanginum á miðvikudag.

„Þetta er eins og lífið, það eru skoðanir alls staðar. Ég tel það ekki mikilvægt að virða allar skoðanir, því ef skoðunin er glötuð þá er engin ástæða til að virða hana. Það er til fólk sem vill að fótbolta sé spilaður á þennan hátt og þeir eru í meirihluta. Ég er einn af þeim, en það eru einhverjir sem eru ekki hrifnir af þessu. Meirihlutinn naut þess að horfa á þetta og það er það mikilvægasta í þessu.“

„Þvílík gæði sem bæði lið sýndu og hvað framherjarnir eru í háum gæðaflokki. 5-4 úrslit gætu litið út fyrir að vera skelfileg úrslit fyrir varnirnar, en þetta eru tvö bestu varnarlið heims ásamt Arsenal. Þetta var bara öðruvísi leikur og um leið erfiðasti andstæðingur sem ég hef mætt sem þjálfari PSG.“

„Þetta var einstakur fótboltaleikur og venjulega eyði ég þremur tímum í að greina andstæðinganna, en það tók migi fimm tíma að greina þennan leik. Bayern sýndi ótrúleg tilþrif í leiknum, bæði í vörn og sókn. Það voru ekki ein varnarmistök, sem gerði leikinn stórkostlegan. Sjáið bara hvernig Kane og Dembele vörðust, algerlega magnað. Við verðum að hrósa báðum liðum og njóta leiksins,“
sagði Enrique.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner
banner
banner
banner