Stones gæti farið aftur til Everton - Salah tekur Tyrkland fram yfir Sádi-Arabíu - Vicario á förum frá Tottenham
   fös 01. maí 2026 16:58
Brynjar Ingi Erluson
2. deild: Tvö mörk í uppbótartíma á Ólafsvíkurvelli - Vogamenn með sigurmark undir lokin
Ólsarar björguðu stigi með tveimur mörkum í uppbótartíma
Ólsarar björguðu stigi með tveimur mörkum í uppbótartíma
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Vogamenn byrja á sigri
Vogamenn byrja á sigri
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Fyrsta umferð 2. deildar karla hófst með látum í dag en Víkingur Ó. bjargaði stigi í 3-3 jafntefli gegn Hvíta riddaranum með tveimur mörkum í uppbótartíma á meðan Þróttur V. vann Hauka, 2-1, með sigurmarki undir lokin.

Mosfellingar unnu 3. deildina á síðasta ári á meðan Ólsarar höfnuðu í 8. sæti 2. deildar.

Ólsarar skoruðu dýrmætt mark undir lok fyrri hálfleiks er Naim Aaras El Hmaidi setti boltann í netið, en gestirnir sneru leiknum sér í hag í byrjun síðari.

Patrekur Orri Guðjónsson skoraði tvö mörk á fimmtán mínútum áður en Óðinn Már Guðmundsson bætti við þriðja markinu níu mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma.

Gestirnir héldu að sigurinn væri kominn í höfn, en Ólsarar voru með aðrar áætlanir. Júlíus Valdimar Guðjónsson varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið net á þriðju mínútu í uppbótartíma og tveimur mínútum síðar jafnaði El Hmaidi metin.

Senur í Ólafsvík og jafntefli niðurstaðan. Alvöru byrjun á deildinni!

Þróttur Vogum hafði betur gegn Haukum, 2-1, á Vogaídýfuvellinum.

Eiður Jack Erlingsson braut ísinn á 8. mínútu leiksins en Einar Karl Ingvarsson jafnaði fyrir Hauka þrettán mínútum fyrir leikslok.

Tómas Þórðarson var hetja Vogamanna á 89. mínútu leiksins og lokatölur 2-1. Vogamenn mæta næst KFA þann 9. maí á meðan Haukar spila við Magna sama dag.

Þróttur V. 2 - 1 Haukar
1-0 Eiður Jack Erlingsson ('8 )
1-1 Einar Karl Ingvarsson ('77 )
2-1 Tómas Þórðarson ('89 )

Víkingur Ó. 3 - 3 Hvíti riddarinn
1-0 Naim Aaras EL Hmaidi ('44 )
1-1 Patrekur Orri Guðjónsson ('49 )
1-2 Patrekur Orri Guðjónsson ('59 )
1-3 Óðinn Már Guðmundsson ('81 )
2-3 Júlíus Valdimar Guðjónsson ('90 , sjálfsmark)
3-3 Naim Aaras EL Hmaidi ('90 )
2. deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
Slapp
banner
banner
banner