Strákarnir í U21 verða í eldlínunni í dag miðvikudag þegar þeir taka á móti Armenum á Fylkisvelli og hefst leikurinn kl. 16:30. Liðið heldur svo til Frakklands að leik lokum en leikið verður gegn heimamönnum, mánudaginn 8. september.
Íslenska liðið er í öðru sæti riðilsins en það sæti getur gefið réttinn til að leika í umspili fyrir úrslitakeppni EM 2015. Frakkar hafa þegar tryggt sér efsta sæti riðilsins en Armenar eru með 6 stig eftir sex leiki.
Efsta þjóðin í hverjum riðli kemst í umspilið ásamt þeim fjórum þjóðum sem eru með bestan árangur af liðunum í öðru sæti riðlanna tíu.
Fótbolti.net fór á æfingu liðsins í vikunni og ræddi við Eyjólf Sverrisson þjálfara.
„Menn eru ferskir og mikill hugur í mönnum. Við verðum að vinna þennan leik og ætlum okkur það til að eiga góða möguleika á að komast í umspilið. Um kvöldið sjáum við svo hver staðan er. Við gætum verið komnir áfram en gætum þurft stig gegn Frökkum," sagði Eyjólfur.
Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.























