Kane til Barca - Arsenal og Barcelona fylgjast með ungstirni - Liverpool með augastað á Kevin - Branthwaite til Man Utd?
   mán 03. nóvember 2025 12:33
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Oxlade-Chamberlain æfir með Arsenal
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Alex Oxlade-Chamberlain æfir þessa dagana með Arsenal en hann er án félags sem stendur og í leit að nýju félagi.

Hann er 32 ára og mun aðallega æfa með U21 liði Arsenal til að halda sér í formi.

Hann lék á sínum tíma 200 leiki fyrir Arsenal áður en hann fór til Liverpool árið 2017.

Liverpool keypti hann á 35 milljónir sem er metsala hjá Arsenal.

Oxlade-Cahmerlain, sem er 32 ára enskur miðjumaður, er án félags eftir að hafa yfirgefið tyrkneska félagið Besiktas í sumar.

Samkvæmt heimildum Sky Sports hefur hann hafnað nokkrum góðum tilboðum erlendis frá en hann vill spila á Englandi.
Athugasemdir
banner
banner
banner